Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reykjavíkurmaraþon
Frábær dagur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 22. ágúst 2010 21:21

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 var vel heppnað. Veðrið var frábært og gleði í loftinu.


10.444 skráðu sig til þátttöku þetta árið:

Maraþon 616
Hálfmaraþon 1353
10 km 3680
Boðhlaup 54 (16 lið)
3 km skemmtiskokk 1670
Latabæjarhlaup 3071

98 góðgerðafélög tóku þátt í áheitasöfnun í tengslum við hlaupið sem stendur enn yfir á hlaupastyrkur.is. Áheitasöfnun er að nálgast 30 milljónir og hefur gengið vonum framar.


Takk fyrir frábæran dag kæru hlauparar, starfsmenn, sjálfboðaliðar, hvatningarfólk, vegfarendur og allir aðrir sem gerðu daginn ógleymanlegan.


Smellið HÉR til að skoða úrslit og HÉR til að skoða myndir.


 
Björn sigraði í maraþoni fyrstur Íslendinga síðan 1984 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 21. ágúst 2010 12:18

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur gengið vel í dag. Þúsundir Íslendinga hafa hlaupið um götur borgarinnar og eru enn að. Búið er að veita verðlaun til sigurvegara í keppnisvegalengdum. Smellið hér til að skoða lista yfir sigurvegara dagsins.

Björn MargeirssonÍ maraþoni karla kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 2:33:57. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1984 sem íslenskur karl kemur fyrstur í mark í maraþoni. Árið 1984, í fyrsta Reykjavíkurmaraþoninu, sigraði Sigurður Pétur Sigmundsson en síðan þá og þar til í dag hafa sigurvegararnir verið erlendir. Í maraþoni kvenna kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á tímanum 2:57:33 en það er 12 besti tími kvenna í Reykjavíkurmaraþoni frá upphafi og besti tími síðustu fimm hlaupa. Þau Björn og Rannveig eru ásamt því að vera sigurvegarar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, Íslandsmeistarar í maraþoni 2010.

Þjóðverjinn Oliver Steininger sigraði í hálfmaraþoni karla og Íris Anna Skúladóttir í hálfmaraþoni kvenna. Steininger var á tímanum 1:16:11 og Íris Anna á 1:26:55. Í 10 km hlaupinu sigruðu þau Jósep Magnússon á tímanum 34:50 og Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 39:01.

Óstaðfest úrslit uppfærast sjálfkrafa á HÉR á vefnum á 5 mínútna fresti. Staðfest úrslit og úrslit í aldursflokkum og sveitakeppni verða birt hér á marathon.is fljótlega eftir að tímatöku lýkur kl.14:40.

Alls voru 7.319 hlauparar skráðir til þátttöku í hlaupunum sem ræst voru í Lækjargötu í dag. Flestir í 10 km hlaupið eða 3.680 sem er þátttökumet í vegalengdinni. Latabæjarhlaupið fer nú fram í Hljómskálagarðinum og er búist við því að rúmlega 3.000 börn taki þátt. Nánari skráningartölur munu liggja fyrir síðar í dag.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 32
Borði
Borði
Borði

Kort