|
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs. Hér að neðan er listi yfir þau góðgerðafélög sem hafa skráð sig til þátttöku og geta hlauparar tengt sig þessum félögum og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram eða á hlaupastyrkur.is. Virkja þarf söfnun með því að nýskrá hlaupara á hlaupastyrkur.is. Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin.
ABC BARNAHJÁLP / ABC CHILDREN´S AID ABC barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem stofnað var árið 1988. Starfið snýst um það að gefa fátækum börnum í þróunarlöndum tækifæri til menntunar og hjálpa götubörnum til nýs lífs með því að veita þeim heimili og menntun. ABC starfar í 10 löndum Asíu og Afríku og veitir í dag um 12.000 börnum frá 3ja ára aldri ókeypis menntun, skólabúning, læknishjálp og eina máltíð á dag. Að auki búa 4000 barnanna á heimvistum og barnaheimilum ABC. Heimasíða félagsins er abc.is.
ADHD samtökin / ADHD association of Iceland ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir sem og fjölskyldum þeirra. Upplýsinga- og fræðsluþjónusta er að Háaleitisbraut 13, s. 581-1110, opið kl. 13 – 16 alla virka daga. Á vegum samtakanna eru haldin námskeið, fræðsla og fundir fyrir börn, foreldra og fullorðna með ADHD (athyglisbrest og ofvirkni). Einnig fræðsla og námskeið fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla og framhaldsskóla. Fréttabréf er gefið út og ýmislegt annað fræðsluefni um ADHD. Sjá nánar á adhd.is.
AHC samtökin á Íslandi / AHC association of Iceland Tilgangur félagsins er að stuðla að kynningu á AHC sjúkdómnum á Íslandi. Að hlúa að og styrkja einstaklinga með AHC og fjölskyldur þeirra. Heimasíða félagsins er ahc.is.
Alanó líknarfélag / Alano Rekur félagsmiðstöð þar sem 12 spora félög geta haft aðstöðu fyrir fundi sína og aðra 12 spora starfsemi. Alano heldur utan um rekstur húsnæðisins og fundi innan veggja þess. Heimasíða félagsins er alano.is.
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAGIÐ / ASTHMA AND ALLERGY ASSOCIATION Astma- og ofnæmisfélagið var stofnað 1974 til að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem eru með astma og ofnæmi. Skrifstofa félagsins er við Síðumúla 6, 108 Reykjavík (í húsi SÍBS) og sinnir starfsmaður félagsins erindum þar mánudögum kl.9-15. Félagið talar máli sjúklinga með astma og ofnæmi við yfirvöld heilbrigðismála, kennslumála og við aðra áhrifahópa í þjóðfélaginu. Styrktarsjóður félagsins styrkir rannsóknir og starfsþjálfun heilbrigðisstarfsfólks á sviði astma og ofnæmis. Félagið á aðild að Samtökum íslenskra berkla- og brjósthols-sjúklinga (SÍBS) og norrænum samtökum sjúklinga með astma og ofnæmi. Félagið er öllum opið og voru félagsgjöld fyrir árið 2010 kr. 2000, hálft gjald fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja. Heimasíða félagsins er ao.is.
Ás styrktarfélag Starfsemi Áss styrktarfélags er eins og segir í lögum þess: Að gæta hagsmuna og reka þjónustu til stuðnings fólki með fötlun, sér í lagi greindarskerðingu og tengdar fatlanir. (tilv.líkur) Einnig höldum við úti nokkrum verkefnum til frekari framvindu hagsmunamálum fólks með þroskahömlun. Má þar nefna Þekkingarsetur og Breyttan lífsíl, sjá nánar á heimasíðu: www.styrktarfelag.is.
Bandalag íslenskra skáta / The Icelandic boy and girl scout association Skátahreyfingin hefur sett sér það að markmiði að stuðla að því að börn og unglingar verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar. Með því að tala um að veita einstaklingum þroska, er átt við það að hver maður býr yfir fjölmörgum eiginleikum sem unnt er að rækta og þróa. Skátahreyfingin leggur áherslu á að skátar verði sjálfstæðir einstaklingar, sem venjast á að bera ábyrgð á því sem þeim er falið, læra að bera ábyrgð á eigin gerðum með markvissri þjálfun. Læri að meta, rökræða og taka afstöðu til mála. Venjist því að vinna með öðrum og virða skoðanir annarra. Virða jafnan rétt allra manna og skilja þjóðfélagslega samábyrgð allra þegna landsins. Heimasíða félagsins er skatar.is.
Barnaheill / Save the Children Iceland Barnaheill, Save the Children, á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru árið 1989. Þau eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children International, en að þeim standa 29 landsfélög sem starfa í 120 löndum. Save the Children voru stofnuð í Bretlandi árið 1919. Stofnandi þeirra, Eglantyne Jebb, var með þeim fyrstu til að benda á að það væri réttur barna að alast upp í öryggi og friði. Samtökin vinna að mannréttindum barna með því að vera málsvari þeirra, með fræðslustarfi, innlendum og erlendum verkefnum og í gegnum neyðaraðstoð. Á Íslandi leggja Barnaheill áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á baráttu gegn ofbeldi á börnum og að rödd barna heyrist betur. Helstu áherslur Barnaheilla í erlendum verkefnum eru á menntun, vernd barna gegn ofbeldi og neyðaraðstoð. Heimasíða félagsins er barnaheill.is.
Bergmál, líknar og vinafélag Orlofsvikur fyrir krabbameinssjúklinga og aðra langveika í eigin húsnæði að Sólheimum í Grímsnesi skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Allt starfs Bergmáls er í sjálfboðavinnu. Auk orlofsvikna félagsins leigir félagið húsið út fyrir félög innan Öryrkjabandalags Íslands og félög aldraðra. Heimasíða félagsins er bergmal.is.
Blátt áfram / "Speak straight Forward" child sexual abuse prevention (CSA) Forvarnarfræðsla gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Blátt áfram var stofnað árið 2004. Fræðslan byggist fyrst og fremst á því að koma í veg fyrir ofbeldið. Farið er í grunn- og leikskóla landsins. Námskeið Verndarar barna og fyrirlestur fyrir fullorðna, til að kenna börnum um líkama sinn, mörk og samskipti. Einnig talað við unglinga í lífsleikni, rætt er um samskipti, kynlíf og mörk. Fyrir yngstu börnin er brúðuleikhúsið „Krakkarnir í hverfinu“ sýning sem kennir börnum að leita sér hjálpar og segja frá óþægilegum leyndarmálum. Á síðasta ári voru fræddir um 5100 einstaklingar, fullorðnir, unglingar og börn. Heimasíða félagsins er www.blattafram.is.
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi / Blindrafelagid, Icelandic organization of visually impaired Hagsmunasamtök blindra og sjónskertra á Íslandi. Heimasíða félagsins er blind.is.
Breið bros / Wide smiles Tilgangur Breiðra brosa er að starfa að hinum ýmsu málefnum barna sem fæðast með skarð í vör og/eða góm eða önnur andlitslýti. Í því felst meðal annars: Stuðningur við foreldra barna með skarð, bæði nýorðna foreldra og hina eldri., Vinna að fræðslumálum., Vinna að hagsmuna- og réttindamálum barna með skarð. Heimasíða félagsins er breidbros.is.
Brunavarðafélag Reykjavíkur Tilgangur sjóðsins er að styrkja þá félagsmenn Brunavarðafélags Reykjavíkur sem verða fyrir slysum eða sjúkdómum. Styrk má einnig veita vegna slyss eða sjúkdóma sem makar félagsmanna eða börn yngri en 20 ára verða fyrir. Forgang skulu þeir hafa sem þurfa að leita erlendis eftir læknisaðstoð og eiga við langtíma veikindi að glíma. Stjórn sjóðsins getur einnig kosið að styrkja málefni sem hún telur brýn og varða velferð einstaklinga eða hópa.
Bætum ein-stök brjóst / Benefit unique breasts Bætum ein-stök brjóst er góðgerðarfélag sem styrkir Minningarsjóð Margrétar Oddsdóttur. Minningarsjóði Margrétar Oddsdóttur er ætlað að styrkja skurðlækningar við brjóstakrabbameini við Landspítala.Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein hafa batnað mikið síðastliðna áratugi. Vegna þess hve lífslíkur eru góðar er vaxandi áhersla skurðmeðferðar lögð á lífsgæði krabbameinsgreindra kvenna, m.a. með endursköpunaraðgerðum á brjóstum á sérhæfðum brjóstamiðstöðvum. Skurðmeðferð hefur því orðið umfangsmeiri, þar sem oft fer saman aðgerð til lækningar á krabbameini og aðgerð til að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin veldur. Ör þróun innan þessa sviðs kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og meðferðaraliða. Hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur er að styðja og styrkja þessa starfssemi. Heimasíða félagsins er brjost.is.
Daufblindrafélag Íslands Daufblindrafélag Íslands er félag þeirra sem eiga við samsetta sjón- og heyrnarskerðingu. Félagið stendur vörð um hagsmuni þeirra sem eru fæddir daufblindir, verða daufblindir síðar á lífsleiðinni vegna sjúkdóma og þeirra sem eiga við samsetta aldurstengda sjón- og heyrnarskerðingu. Þá stendur félagið fyrir félagsstarfi fyrir félagsmenn yfir vetrarmánuðina. Hjá félaginu starfar ráðgjafi í 50% starfi, Hafdís María Tryggvadóttir. Hlutverk ráðgjafans er að aðstoða félagsmenn og fjölskyldur þeirra við að leita uppi þjónustu og fræða fólk um daufblindu. En hvað er daufblinda? Daufblinda er það þegar saman fer sjón- og heyrnarskerðing. Það er mjög misjafnt hve miklar þessar skerðingar eru. Sumir heyra og sjá töluvert, einhverjir sjá ekki en heyra sæmilega, einhverjir heyra ekki en sjá sæmilega og svo eru þeir sem hvorki sjá né heyra. Því er óhætt að segja að þessi skerðing sé mjög einstaklings bundinn. Heimasíða er í vinnslu.
Drekaslóð Drekaslóð veitir þolendum alls kyns ofbeldis og aðstandendum þeirra aðstoð ti að vinna með sínar afleiðingar í formi viðtala, námsekiða og hópastarfs. Við bjóðum velkomna til okkar þolendur eineltis, kynferðislegs ofbeldis, þolendur ofbeldis í parasamböndum eða innan fjölskyldna, hvort sem ofbeldið er andlegt eða líkamlegt. Einnig þolendur ofbeldis framið af ókunnugum. Við leggjum áherslu á að ná til karlmanna í auknum mæli, við viljum reyna grípa unga fólkið okkar eins fljótt og hægt er og einnig munum við bæta þjónustu til heyrnarskertra og geðfatlaðra. Við bjóðum bæði upp á grunnþjónustu í formi einstaklingsviðtala og grunnhópa og einnig bjóðum við uppa á fjölbreytta framhaldsvinnu sem oft er sérsniðin fyrir hvern hóp fyrir sig. Við byggjum á hjálp til sjálfshjálpar. Heimasíða félagsins er enn í vinnslu.
Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki / Dropinn, the Icelandic charity for children with diabetes Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki stuðlar að velferð barna og unglinga með sykursýki. Eitt höfuðmarkmiða Dropans er að standa að sumarbúðum fyrir börn og unglinga með sykursýki. Einnig er markmið þess að miðla fræðslu og veita stuðning foreldrum barna með sykursýki. Allt starf félagsmanna í þágu Dropans er unnið í sjálfboðavinnu. Heimasíða félagsins er www.dropinn.is.
Dýrahjálp Íslands / ISPCA (Iceland Society for the Provention of Cruelty to Animals) Dýrahjálp Íslands leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stefnir að því að stofna til þess dýraathvarf og að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við dýravernd. Þangað til hægt verði að stofna til slíks athvarfs mun félagið, með aðstoð sjálfboðaliða félagsins, leitast við að finna þeim dýrum sem annars væri lógað ný heimili, hvort sem það er fósturheimili til skammst tíma þar til framtíðarheimili finnst eða beint á varanlegt heimili. Heimasíða félagsins er dyrahjalp.is.
Einstök börn, stuðningsfélag Stuðningsfélag fyrir börn með langvinna og jafnvel ógreinda sjúkdóma, og aðstandendur þeirra. Heimasíða félagsins er einstokborn.is.
Enza "Í fátækrahverfi í Suður-Afríku reka íslenskar konur hjálparsamtökin Enza. Starfið miðar að því að hjálpa konum og stúlkum alveg niður í 11 ára sem verða ófrískar en þurfa að gefa börnin til ættleiðingar vegna sárrar fátæktar og-/eða útskúfunar. Í flestum tilfellum hefur þeim verið nauðgað, en konu er nauðgað á 17 sekúndna fresti í landinu. Út af skömm eru þær gjarnan útskúfaðar af fjölskyldum sínum og gerðar brottrækar úr samfélögunum og án hjálpar eiga þær litla möguleika á að öðlast betra líf. Ruth Gylfadóttir býr skammt frá Mbekweni fátækrahverfinu á Höfðasvæðinu. Hún stjórnar hjálparstarfinu og hefur séð um tölvu- og lífsleikninámskeið fyrir stúlkurnar, sem sumar hafa fengið vinnu eða starfssamninga í kjölfarið. Nú standa yfir framkvæmdir á viðbyggingu við húsnæði Enza. Þar verður rekin fræðslumiðstöð fyrir Enza stelpurnar og aðrar konur í Mbekweni fátækrahverfinu. Auk þess verður um að ræða tímabundið heimili fyrir stúlkurnar þar sem þær fá að búa þar til þær ná að fóta sig í tilverunni á ný." Heimasíða félagsins er enza.is.
FAAS-félag áhugafólks og aðstandenda alzheimersjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma Samtök sem starfa um allt land. Markmið félagsins er m.a. að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna, efla samvinnu og samheldni aðstandenda m.a. með fræðslufundum og útgáfustarfsemi og auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim vandamálum sem þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra eiga við að etja. Í nafni félagasins er haldið út fræðslu um heilabilun og umönnun fólks með sjúkdómana og ráðgjöf til fjölskyldna hinna sjúku. Heimasíða félagsins er alzheimer.is.
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni / Down Syndrome Parent Association Félag áhugafólks um Downs-heilkenni stuðlar að fræðslu til foreldra og almennings um Downs-heilkenni. Eflir samkennd milli aðstandenda. Aflar upplýsinga um Downs-heilkenni og miðlar þeim. Tekur þátt í að samræma og efla þjónustuferli. Heimasíða félagsins er www.downs.is.
Félag CP á ÍSlandi Félag CP á Íslandi var stofnað árið 2001. CP stendur fyrir Cerebral Palsy sem þýtt hefur verið heilalömun á íslensku. CP er algengasta orsök hreyfihömlunar hjá börnum og má búast við að um 10 börn greinist á ári hverju á Íslandi. CP er afleiðing skaða eða áfalls í stjórnstöðvum hreyfinga í heila, sem verða áður en heilinn nær fullum þroska. Skaðinn verður því á meðgöngu, í fæðingu eða fljótlega eftir fæðingu. Skemmdirnar torvelda stjórnun hreyfinga og beitingu líkamans. Þær eru óafturkræfar. Fötlunin er margbreytileg og einkenni mismunandi. Sumir með CP hreyfa sig og þroskast nánast eðlilega meðan aðrir þarfnast aðstoðar við nánast allar athafnir daglegs lífs. Þeir einstaklingar eru háðir mörgum hjálpartækjum og stöðugri umönnun. Alvarlegar viðbótarfatlanir geta fylgt ss. flogaveiki og greindarskerðing. Starfsemi CP félagsins er fjármögnuð með félagsgjöldum og gjöfum einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja. Allt starf innan félagsins er unnið í sjálfboðavinnu. Sjá nánar á heimasíðu félagsins cp.is.
Félag heyrnarlausra / The Icelandic Association of the Deaf Félag heyrnarlausra er öflugt hagsmunafélag með mikla þekkingu á málefnum er varða íslenskt táknmál og menningarsamfélag heyrnalausra. Félag heyrnalausra veitir hvers konar ráðgjöf og álit er snúa að málefnum heyrnalausra og hefur ávallt að leiðarljósi hagsmuni félagsmanna sem tryggir þeim jafnræði hvarvetna í samfélaginu. Félag heyrnarlausra er hagsmunafélag heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi og hefur starfað frá því árið 1960. Markmið félagsins er að standa vörð um réttindi heyrnarlausra og tryggja að þeir njóti jafnræðis hvarvetna í samfélaginu á grundvelli táknmáls. Einnig vinnur félagið að því að styrkja stöðu íslenska táknmálsins, móðurmáls heyrnarlausra, auk þess að vinna að forvarnarverkefnum í geðheilbrigðismálum heyrnarlausra sem mörg hver hafa orðið fyrir ofbeldi í æsku. Félag heyrnarlausra hefur 5 full stöðugildi á sínum vegum þar sem sérþjálfað og táknmálstalandi starfsfólk sinnir málefnum heyrnarlausra á ýmsum vettvangi, á öllum aldursstigum. 65% tekna félagsins er sjálfsaflafé og hefur okkur ekki tekist að fá sveitarfélög né ríki til að sýna okkur skilning í því gríðarlega mikilvæga starfi sem Félag heyrnarlausra hefur þurft að sinna þar sem hin opinberu embætti hafa ekki samskiptalega getu til að sinna þeim málum, þó svo viðurkennt hafi verið af hinu opinbera að mistök hafi verið gerð í málefnum heyrnarlausra í æsku þar sem þau máttu þola gríðarlega einangrun og misbeitingu valds, hvort sem um líkamlegt eða andlegt ofbeldi var að ræða. Félag heyrnarlausra held upp á 50 ára afmæli síðasta líðin þann 13. febrúar og með ýmsum uppákomum í tilefni afmælisins. Heimasíða félagsins er deaf.is.
Félag nýrnasjúkra / Icelandic Kidney Association Markmið FN er að styðja nýrnasjúka og aðstandendur þeirra. Starfið er tvíþætt – annars vegar beinist það að hag nýrnasjúkra almennt og hins vegar að hverjum einstökum sem til félagsins leitar. Heimasíða félagsins er nyra.is.
Fjörður - íþróttafélag Íþróttafélagið Fjörður sinnir þörfum þeirra sem eru andlega og/eða líkamlega fatlaðir. Hjá Firði fá einstaklingar tækifæri til að koma saman, iðka skemmtilegar íþróttir til æfingar og keppni. Fjörður gefur börnum og fullorðnum kost á að stunda sund eða boccia. Allir eru velkomnir á æfingar, til að kynnast því, sem þar fer fram og hvetjum við alla til að mæta og sjá hvort ekki sé eitthvað við þeirra hæfi eða þeirra skjólstæðinga sem þeir gætu haft gagn og gaman af að vera með í. Það styrkir sjálfsmyndina og eykur félagsleg tengsl. Heimasíða félagsins er fjordur.com.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavik / Reykjavik Air Ground Rescue Team Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík var stofnuð árið 1950 í kjölfar Geysis slyssins. Sveitin hefur á að skipa mörgum færum einstaklingum sem hafa hlotið mikla þjálfun í ýmsum tegundum björgunarstarfs. Sveitin skiptist niður í þrjá flokka, tækjaflokk, útkallsflokk og nýliðaflokk. Undir hverjum flokki eru faghópar á hverju sviði. Eitt af höfuð markmiðum Flugbjörgunarsveitarinnar er að hafa ávallt vel þjálfaða björgunarmenn og gera mikla kröfur til hæfni þeirra, bæði líkamlega og andlega. Nýliðaþjálfunin er ströng og félögum gefst síðan kostur á símenntun og endurmenntun í björgunarfræðum, bæði hér heima og erlendis. Heimasíða fbsr.is.
FSMA á Íslandi / FSMA in Iceland Félagið FSMA á Íslandi var formlega stofnað 18. ágúst 2002og er félag aðstandenda og einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum, Spinal Muscular Atrophy, á Íslandi. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum og aðstandenda þeirra. Tilgangur félagsins er einnig að stuðla að því að lækning finnist sem fyrst við sjúkdómnum og miðlun upplýsinga honum tengdum, jafnt til þeirra sem tengjast sjúkdómnum beint sem og til almennings. Heimasíða félagsins er fsma.ci.is.
Geðhjálp / The Icelandic Mental Health Alliance Geðhjálpar, sem stofnað var 9. október 1979 er félag þeirra sem hafa þurft eða þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra er láta sig geðheilbrigðismál varða á landsvísu. Tilgangur félagsins er að vinna að geðheilbrigðismálum og bæta hag þeirra, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, barna og fullorðinna, svo og aðstandenda þeirra. Heimasíða félagsins er gedhjalp.is.
Geðverndarfélag Íslands Rekstur áfangaheimilis fyrir geðfatlaða og verndaðra heimila fyrir geðfatlaða, ásamt forvörnum í geðheilbrigðismálum.
Gigtarfélag Íslands / The Icelandic League against Rheumatism Tilgangur Gigtarfélags Íslands er í hnotskurn „að bæta lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma“ . Að upplýsa, fræða og styðja er hlutverk félagsins. Öll hagsmunamál erun meira áberandi en áður í takt við þá tíma sem við lifum. Félagið styður við rannsóknir og rekur Gigtarmiðstöðina að Ármúla 5 og er hún miðstöð starfseminnar. Starfið miðast við félagsstarf og forvarnir í víðum skilningi. Á miðstöðinni má finna viðhaldsendurhæfingu (sjúkra- og iðjuþjálfun), skipulagða leikfimi, fræðslu og ráðgjöf fyrir fólk með gigt og aðstandendur þeirra. Bein leiðbeining og ráðgjöf er vaxandi þáttur í starfseminni. Félagar í GÍ eru ríflega 5.200. Heimasíða félagsins er gigt.is.
Göngum saman - rannsóknir á brjóstakrabbameini / Walking for breastcancer research Öll starfsemi Göngum saman miðast að því að safna fé til eflingar styrktarsjóði félagsins sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini á Íslandi. Heimasíða félagsins er gongumsaman.is.
Heilaheill / Heilaheill – Non-profit organisation for people interested in cerebrovascular disease Félagið Heilaheill, samanstendur af þeim sem fengið hafa slag (heilabæðingu, blóðtappa eða súrefnisþurrð af einhverju tagi), aðstandendum og fagaðilum, svo og öðrum þeim er hafa áhuga á málefninu og koma fræðslu á framfæri. Félagið úthlutar styrkjum til þeirra sem hafa orðið illa úti vegna slags. Markmið félagsins, sem er sjálfshjálparfélag, er að efla félagsstarfið m.a. með því að vera með mánaðarlega fræðslufundi yfir sjúkdóminn og afleiðinga hans fyrir þá sem hafa orðið fyrir slagi og aðstandenda þeirra, þá yfir vetrarmánuðina undir yfirskriftinni “Þetta er ekki búið” og “Áfall, ekki endirinn”. Heimasíða félagsins er heilaheill.is.
Hetjurnar, félag langveikra barna á Norðurlandi Að gefa fjölskyldum tækifæri til að hittast og eiga góðar stundir saman. Heimasíða félagsins er hetjurnar.is.
Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga / The Icelandic Association of Heart Patients Þegar Landssamtök hjartasjúklinga, sem nú heita Hjartaheill, voru stofnuð var tíðni kransæðasjúkdóms á Íslandi í hámarki. Þá mátti reikna með því að 20- 30 % þeirra sem fengju kransæðastíflu myndu ekki lifa það af. Síðustu ár hefur dánartíðnin við kransæðastíflu lækkað og er í dag einungis um 5%. Þetta var fyrir 25 árum, nánar til tekið 8. október 1983 og voru stofnfélagar 230, nú eru félagsmenn Hjartaheilla 3600. Allt frá stofnun hafa samtökin beitt sér fyrir fræðslu og forvörnum varðandi hjartasjúkdóma, veitt aðstoð og ráðgjöf og staðið fyrir margvíslegum umbótum í þágu hjartasjúklinga. Heimasíða félagsins er hjartaheill.is.
Hjartavernd / Icelandic Heart Association Hjartavernd er sjálfseignarstofnun sem er rekin án hagnaðarvonar. Markmið Hjartaverndar hefur alla tíð verið skýrt og ekkert breyst á þeim rúmum fjörtíu árum sem liðin eru frá stofnun félagsins, en það er að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma og efla forvarnir á því sviði. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hóf starfsemi sína árið 1967 með mjög viðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, Hóprannsókn Hjartaverndar þar sem áhersla var lögð á að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma meðal Íslendinga. Hjarta- og æðasjúkdómar voru þá og eru enn algengasta dánarorsök karla og kvenna á Íslandi. Hjartavernd hefur frá upphafi lagt áherslu á að koma niðurstöðum rannsókna sinna til almennings og heilbrigðisstarfsfólks og hefur meðal annars staðið fyrir öflugu fræðslustarfi með útgáfu fræðslubæklinga um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma sem allir eru ókeypis. Eins má nefna Handbók Hjartaverndar sem má finna á heimasíðu félagsins en í henni eru kynntar helstu niðurstöður úr hóprannsóknum Hjartaverndar. Heimasíða félagsins er hjarta.is.
Hjálparstarf kirkjunnar / Icelandic Church Aid Hjálparstarf kirkjunnar styður framfaraverkefni á Indlandi, Eþíópíu, Úganda og Malaví. Verkefnin snúa að mannréttindum, bættri stöðu barna og kvenna, betra aðgengi að hreinu vatni og baráttu gegn HIV/alnæmi og öðrum skæðum sjúkdómum. Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að einum stærstu mannúðarsamtökum heims ACT Alliance og sinnir í samstarfi við þau neyðarhjálp um allan heim. Hjálparstarf kirkjunnar sinnir umfangsmikilli aðstoð í öllum landshlutum hér heima – auk fræðslustarfs. Sjá nánar á heimasíðunni www.help.is.
Hollvinir Grensás Meginviðfangsefni Hollvinasamtaka Grensásdeildar er að vekja athygli á starfi deildarinnar, styðja við bakið á henni, safna fé til kaupa á tækjum o.fl. Heimasíðan er grensas.is.
Hringurinn, Barnaspítalasjóður / The Children‘s Hospital Fund Fjársöfnun fyrir og stuðningur við veik börn á Íslandi. Félagskonur sinna fjársöfnuninni með sjálfboðaliðastörfum og safna í styrktarsjóð. Tekjur sjóðsins byggjast á minningarkorta- og jólakortasölu, happdrætti, jólabasar og veitingasölu félagskvennanna. Úr Barnaspítalasjóði Hringsins eru veittir styrkir til að kaupa ýmis konar búnað og tæki sem eru notuð til að veita veikum börnum á Íslandi nauðsynlega meðferð og aðhlynningu. Stærstu styrkirnir hafa farið til Barnaspítala Hringsins og Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Heimasíða félagsins er www.hringurinn.is.
Hugarfar / State of mind Er að vinna að velferð og hagsmunamálum fólks með áunnin heilaskaða og aðstandenda þeirra. Heimasíða félagsins er hugarfar.is.
Íslandsdeild Amnesty International / Amnesty International Icelandic Section Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að alþjóðlega viðurkennd mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. Amnesty International sinnir rannsóknum, upplýsir um mannréttindabrot og grípur til aðgerða til þess að hindra og binda enda á alvarleg mannréttindabrot og krefjast réttlætis fyrir þá sem hafa mátt þola slík brot. Heimasíða félagsins er amnesty.is.
Íslensk ættleiðing / Icelandic adoption society Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi og eru meginmarkmið félagsins:
- Að aðstoða þá sem vilja ættleiða börn af erlendum uppruna og ávallt þannig að hagsmunir barnsins sitji í fyrirrúmi.
- Að stuðla að velferð kjörfjölskyldna.
- Að vinna að velferðarmálum barna erlendis.
Á þessu ári er búið að sameina 14 fjölskyldur í gegnum félagið. Börnin sem hafa komið til landsins í ár eru frá Indlandi, Kína, Kólumbíu og Tékklandi.Hægt er að skoða heimasíðu félagins á slóðinni isadopt.is og gerast vinur okkar á Facebook.
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík / Sportclub for disabled in Reykjavík Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík var stofnað 30. maí 1974. Félagið var það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Markmið félagsins er að gera fötluðu fólki kleift að stunda íþróttir til æfingar og keppni. Félagið var einn af stofnaðilum Íþróttasambands fatlaðra árið 1979 og er stærsta aðildarfélag þess. Árið 1992 tók félagið í notkun eigið íþróttahús að Hátúni 14 og fer meginhluti starfseminnar fram þar. Heimasíða félagsins er ifr.is.
Íþrótta- og afrekssjóður barna Hrafnkels / Trust fund for Hrafnkel kids Félagið er styrktarsjóður sem stofnaður var til að veita styrki til íþrótta og menntunar fyrir börn Hrafnkels Kristjánssonar sem lést í bílslysi 18. desember sl. Heimasíða félagsins: http://www.facebook.com/profile.php?id=608703846#!/group.php?gid=142740062424453
Íþróttasamband fatlaðra / Sports Association for disabled in Iceland Íþróttasamband fatlaðra ( skammstafað ÍF ) er æðsti aðili um íþróttir fatlaðra innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands ( Í.S.Í. ). Hlutverk ÍF er að hafa yfirumsjón með þeim íþróttagreinum sem fatlaðir stunda á Íslandi, annast útbreiðslu- og fræðslustarf varðandi íþróttir fatlaðra, vera fulltrúi Íslands varðandi erlend samskipti er tengjast íþróttamálum fatlaðra og gæta hagsmuna allra þeirra fötlunarhópa sem eru innan ÍF sjá nánar á heimasíðu ÍF ifsport.is.
Karitas ehf. hjúkrunar- og ráðgjafarþjónusta / Karitas palliative home care service Karitas ehf. er hjúkrunar- og ráðgjafarþjónusta fyrir fólk með langvinna sjúkdóma. Karitas starfar samkvæmt skilgreiningu WHO á líknarmeðferð og umönnun langveikra. Markmið hjúkrunarfræðinga Karitas er að styðja við einstaklinga sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum þannig að þeir og fjölskylda þeirra geti betur tekist á við daglegt líf þrátt fyrir þær breytingar og takmarkanir sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Heimasíða félagsins er karitas.is.
Kattavinafélag Íslands / The Friends of Cats Society of Iceland Kattavinafélag, líknarfélag sem rekur athvarfið Katthlot fyrir heimilislausa ketti. Heimasíða félagsins er kattholt.is.
Klúbburinn Geysir / Geysir Clubhouse Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmyndafræði Fountain House sem snýst um að efla hæfileika og styrk þeirra sem glíma við geðraskanir. Með því að gefa hverjum og einum tækifæri til að nýta sínar sterku hliðar þjálfast viðkomandi til fjölbreyttrar þátttöku í samfélaginu. Í störfum innan Klúbbsins Geysis er lögð áhersla á stuðning og virðingu og horft á styrkleika í stað þess að einblína á sjúkdóminn eða það sem hamlar. Allir sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða geta orðið félagar í Klúbbnum. Heimasíða félagsins er kgeysir.is.
KRABBAMEINSFÉLAG HAFNARFJARÐAR / THE HAFNARFJORDUR CHAPTER OF THE ICELANDIC CANCER SOCIETY Tilgangur félagsins hefur verið sá sami frá upphafi - Að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini m.a. með fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir, með stuðningi við krabbameinssjúklinga og með stuðningi vð menntun heilbrigðisstétta og við krabbameinsrannsóknir. Heimasíða félagsins er krabb.is/hafnarfjordur.
Krabbameinsfélag Íslands / The Icelandic Cancer Society Samkvæmt 2. grein laga Krabbameinsfélags Íslands er tilgangur félagsins að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Heimasíða félagsins er krabb.is.
Krabbameinsfélag Suðurnesja Líknarfélag- stuðningur við krabbameinsjúklinga og aðstandendur. Félagið er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands. Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini með því Að: fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir, stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins. Ásamt því að veita krabbameinssjúklingum og aðstandendum stuðning og stuðla að krabbameinsrannsóknum hérlendis. Heimasíða félagsins er krabb.is/sudurnes.
Krabbavörn Vestmannaeyja Krabbameinsfélag í Vestmannaeyjum Krabbavörn er svæðisfélag sem er undir Krabbameinsfélagi Íslands. Félagið hefur það hlutverk að styðja við þá einstaklinga sem greinast með krabbamein í Vestmanneyjum og aðstandenda þeirra. Félagið hefur einnig það hlutverk ásamt Krabbameinsfélagi Ísland að Stuðla að þekkingu og menntun um krabbamein og krabbameinsvarnir, Efla krabbameinsrannsóknir, m.a. með söfnun og vísindalegri úrvinnslu upplýsinga, Beita sér fyrir leit að krabbameinum á byrjunarstigi, Styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga. Heimasíða félagsins er http://www.krabb.is/Svaedafelog/svaedafelog-sudurland/krabbavorn
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein / Kraftur Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Heimasíða félagsins er kraftur.org.
Kristniboðssambandið / Icelandic Lutheran Mission Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), oft nefnt Kristniboðssambandið, er landssamtök kristniboðshópa, félaga og einstaklinga sem vinna að kristniboði og hjálparstarfi meðal annarra þjóða. Kristniboðssambandið var stofnað árið 1929. Í upphafi studdi það kristniboða sem sendir voru til Kína. Í dag er starfssvæði SÍK aðallega í Afríkulöndunum Eþíópíu og Keníu, en þar starfa íslenskir kristniboðar. Hér á landi er unnið markvisst starf við boðun og fræðslu. Starfsmenn SÍK taka þátt í margvíslegu starfi á kirkjulegum grunni þar sem þeir sinna fræðslu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni sik.is.
Kríurnar – þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku / Artic Terns Þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku stunda fjáröflun til styrktar verkefnum er styðja við konur í Afríku ásamt því að miðla upplýsingum um aðstæður kvenna í Afríku á heimsíðunni kriurnar.is. Kríurnar hafa nú þegar hafið samstarf við namibísku samtökin Mother to Mother Support Group og stóðu Kríurnar fyrir því að stofnandi þeirra samtaka: namibíska konan Vicky Bam, kæmi til landsins í mars 2010. Vicky hélt erindi um starfs samtakanna og líf sitt sem HIV-smitaðrar konu. Kríurnar hafa einnig gefið út gjafakort í fjáröflunarskyni en kortin hannaði myndlistarmaðurinn Jesús Loayza. Kortin eru seld á heimasíðunni. Heimasíða félagsins er kriurnar.is.
Kvenréttindafélag Íslands / Icelandic Women’s Rights Association Kvenréttindafélag Íslands vinnur að mannréttindabaráttu kvenna og að jafnrétti kynjanna. Félagið hefur unnið að kvenréttindabaráttu í rúm hundrað ár og ýmislegt hefur áunnist síðan, þ.á.m. kosningarréttur kvenna og kjörgengi, jafnræði kynjanna fyrir lögum, o.fl. Ýmislegt er þó ógert eins og t.d. að jafna launamun kynjanna, aðkoma og eignarhald kvenna að fjármagni og valdastöðum í samfélaginu, ofbeldi karla gegn konum er viðvarandi vandamál sem og mansal og vændi. KRFÍ vinnu að því að bæta stöðu kvenna í samfélaginu í samvinnu við stjórnvöld og önnur félagasamtök. Heimasíða félagsins er krfi.is.
Ladies Circle Ísland / Ladies Circle Iceland Tilgangur samtakanna er m.a. að fræða konur um umhverfi sitt og menningu og það er gert með ýmsum hætti. Klúbbar eru með svokallaðar 3 mínútur sem eru ætlaðar því málefni, sem konum liggur á hjarta hverju sinni eða er efst á baugi hjá þjóðinni á hverjum tíma. Mikilvægt er einnig að klúbbar leggi áherslu á að fá til sín fyrirlesara sem veita innsýn í alls kyns málefni sem geta víkkað sýn LC-kvenna á lífið og tilveruna. Við kynnum okkur t.d. skáldskaparmenningu landsins með því að hafa ljóð eða skáld vetrarins. Ellefu klúbbar eru starfandi á Íslandi, tveir á Akureyri, einn á Húsavík, einn á Egilsstöðum, einn í Vestmannaeyjum, tveir í Keflavík og fjórir í Reykjavík. Elínarsjóðurinn er góðgerðar- og hjálparsjóður LCÍ fyrir bágstadda eða hjálparþurfi einstaklinga, sem ábyrgar stofnanir eða einstaklingar óska eftir fjárhagslegum stuðningi við. Heimasíða félagsins er ladies-circle.is.
Landssamtökin Þroskahjálp / National Association of intellectual disabilities Landssamtökin Þroskahjálp hafa frá upphafi lagt höfuðáherslu á að málefni fatlaðra séu málefni samfélagsins alls og að unnið skuli að þeim í samráði við þá sem hagsmuna eiga að gæta. Samtökin eiga því bæði samstarf við stjórnvöld um málefni fatlaðra og berjast fyrir rétti þeirra. Þannig er leitast við að hafa mótandi áhrif á allar aðgerðir, sem stjórnvöld hafa forystu um, með það að leiðarljósi að fatlaðir njóti í hvívetna sama réttar og sömu aðstöðu og aðrir landsmenn. Starf samtakanna er mannréttindabarátta og byggir stefnuskrá samatkanna í grundvallaratriðum á alþjóðlegum mannréttindasáttmálum sem Íslendingar hafa undirritað. Samtökin gefa út tímaritið Þroskahjálp, reka gistiheimili fyrir aðstandendur fatlaðra barna sem þurfa að sækja þjónustu til höfuðborgarinnar vegna fötlunar barns síns, reka eigin húsbyggingasjóð. Samtökin eru einnig aðili að Sjónarhóli, Tölvumiðstöð fatlaðra og Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra. Heimasíða félagsins er throskahjalp.is.
Ljósið endurhæfing krabbameinsgreindra / Light Endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Heimasíða félagsins er ljosid.is.
Lundur forvarnarfélag Aðstoð, stuðningur, ráðgjöf, fræðsla of fleira fyrir þá sem hafa ánetjast áfengi, fíkniefnum og aðstandendum þeirra. Einnig er farið í skóla, fyrirtæki, stofnanir og alla þá staði sem þess óska með kynningu og fræðslu. Fyrirhyggja að forvörnum. Heimasíða félagsins er lundur.net.
Málefli, hagsmunasamtök í þágu barna og unglinga með tal- og málþroskaraskanir Hver er starfsemi Máleflis? Málefli var stofnað í september 2009. Markmið samtakanna eru: að vekja athygli á nauðsynlegri þjónustu við börn með tal- og málhömlun, að fræða aðstandendur um tal- og málhömlun , vinna að auknum “réttindum” barna með tal- og málhömlun og hvetja til rannsókna á tal- og málhömlunum. Heimasíða félagsins er malefli.is.
Meðferðarheimilið Krýsuvík / Reahabiltion for drugaddiction Krýsuvíkur samtökin voru stofnuð 24.apríl 1986, og eru samtök einstaklinga og fyrirtækja sem hafa það að markmiði, að starfrækja Meðferðarheimilið í Krýsuvík, til hjálpar þeim einstaklingum, sem ánetjast hafa vímuefnum og af þeim ástæðum misst stjórn á lífi sínu. Megin áherslan er hjálp til sjálfshjálpar fyrir vímuefnaneytendur, sem ekki hafa náð árangri á hefðbundnum meðferðarstofnunum. Krýsuvíkursamtökinn eru meðlimur í European Federation of Therapeutic Communities.Meðferðartíminn er að lágmarki 6 mánuðir, en það er sá tími sem við teljum að sé nauðsynlegur fyrir skjólstæðinga til að fara í helstu þætti fíknisjúkdómsins og til að ná lágmarks jafnvægi. Allir ráðgjafar hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík eru með alþjóðleg ICRC réttindi í vímuefnaráðgjöf á sviði fíknisjúkdóma. Að gerast félagi í Krýsuvíkursamtökunum er í sjálfu sér lítið mál, en mikilvægt. Það er fyrir tilstuðlan félaga og fyrirtækja í samtökunum að Krýsuvík gengur, stór og smá framlög hafa í gegnum árin gert það að verkum að Meðferðarheimilið Krýsuvík er enn til staðar fyrir vímuefnaneytendur. Sjá meira á vefslóðinni krysuvik.is.
MFM Miðstöðin MFM miðstöðin er meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskana. Starfsemi MFM miðstöðvarinnar vegna offitu, matarfíknar og átraskana. Það sem boðið er uppá hjá MFM er einstaklingsmiðað meðferðarprógram sem stuðlar að líkamlegum, tilfinningalegum/huglægum og andlegum bata fyrir þá sem fá skimun um matarfíkn og/eða átraskanir. Heimasíða félagsins er matarfikn.is.
MND félagið á Íslandi / MND association in Iceland Motor Nourone Disease - í sumum löndum kallað ALS eða Amyotropic lateral scolerosis. Þetta er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 1 -6 ár en sumir lifa lengur. Talað er um að 10% geti lifað upp undir 10 ár. Á Íslandi eru á hverjum tíma 15-20 manns með MND. Á hverju ári greinast u.þ.b. 5 manns með MND. Ekki er vitað um orsök sjúkdómsins. Eitthvað veldur því að boð komast ekki á milli hreyfitaugafruma og vöðvinn svarar ekki því sem hugurinn vill. Hreyfitaugafrumurnar visna og deyja. Vegna hreyfingarleysis rýrna vöðvarnir. Mismunandi er hvernig sjúkdómsferlið er hjá fólki, hjá sumum byrjar sjúkdómurinn í taugum sem stjórna fótleggjum, hjá öðrum í taugum sem stjórna handleggjum og hjá enn öðrum byrjar hann í vöðvum sem stjórna öndun, kyngingu og tali. Sjúkdómurinn herjar á vöðva sem lúta viljastýrðum hreyfingur, þ.e.a.s. ekki vöðva eins og hjarta og önnur líffæri sem starfa óviljastýrt. Í mannslíkamanum eru ótal vöðvar og hefur hver og einn sitt hlutverk. Fyrstu vísbendingar um sjúkdóminn er oftast máttleysi í útlim, kannski einum fingri eða fæti. Einnig breyting á tali og kynging verður erfiðari. Fleiri og fleiri vöðvar verða svo fyrir barðinu á sjúkdómnum. Heimasíða félagsins er mnd.is.
MS-félag Íslands / MS Society of Iceland MS-félagið er hagsmunafélag MS-fólks og heldur margvísleg námskeið fyrir fólk með sjúkdóminn og aðstandendur þess. Félagið er með umfangsmikla fræðslustarfsemi, gefur út margskonar fræðsluefni og býður upp á reglulega fræðslufundi um hvaðeina sem tengist sjúkdómnum. Ýmis þjónusta er veitt á vegum félagsins, svo sem námskeið, félagsráðgjöf, læknisráðgjöf, jógatímar, líkamsþjálfun ofl. Heimasíða félagsins er msfelag.is.
Munaðarlaus börn á Haiti / Orphans in Haiti Húmanistar á Haiti verið með ýmis konar uppbyggingarverkefni frá því að jarðskjálftinn mikli reið yfir yfir Haiti í janúar, m.a. að sjá um börn sem misstu forelda sína í jarðskjálftanum. Eitt af þeim verkefnum eru tjaldbúðir og skóli fyrir 50 munaðarlaus börn, en tjöldin eru frá Seglagerðinni Ægi, sem fóru á eigin vegum til Haiti og settu upp tjöldin þar. Fjárhagslegur stuðningur við verkefnið hefur fram að þessu komið frá Velferðasjóði barna, en nú er mikil þörf á stuðningi annarra til að þessu litlu líf haldi áfram að dafna og blómstra. Allur stuðningur rennur beint í verkefnið því það er enginn yfirbygging hvorki hér á Íslandi né á Haiti. Þeir sem styðja þetta verðuga verkefni stuðla þar með því að þessi börn, sem misstu nýverið foreldra sína í jarðskjálftanum í janúar, geti átt mannsæmandi framtíð. Frekari upplýsingar ásamt myndum og video af verkefninu er að finna á vefsíðunni vinirlifsins.blogg.is ( Hjálparstarf á Haiti).
Neistinn styrktarfélag hjartveikra barna / Neistinn childrens heart foundation in Iceland Styrktarfélag hjartveikra barna. Heimasíða félagsins með nánari upplýsingum er neistinn.is.
Parkinsonsamtökin á Íslandi (PSI) / Heiti félagsins á ensku: Parkinsonsociety of Iceland (PSI) Tilgangur samtakanna er að stuðla að auknum lífsgæðum til handa fólki með Parkinsonsjúkdóm, fólki með parkinsonskylda sjúkdóma og fjölskyldum þeirra með því m.a. að: • Standa vörð um réttindi þeirra og hagsmuni. • Með fræðslu og útgáfustarfsemi um málefni félagsmanna og fjölskyldna þeirra. • Stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á sjúkdómnum og möguleikum á meðferð við honum. • Vera vettvangur fyrir parkinsonsjúka, fólk með parkinsonskylda sjúkdóma og aðstandendur til gagnkvæms stuðnings. Félagar geta verið fólk með parkinsonsjúkdóm eða fólk með parkinsonskylda sjúkdóma og aðstandendur þeirra og aðrir sem áhuga hafa á málefnum samtakanna, óháð búsetu. Heimasíða félagsins er psi.is.
PKU félagið á Íslandi / The Icelandic PKU Association PKU er sjaldgæfur meðfæddur efnaskiptagalli sem kemur í veg fyrir niðurbrot líkamans á próteinríkri fæðu. Meðferð við PKU felst því aðallega í að takmarka mjög neyslu á fæðu sem inniheldur prótein, s.s. fiski, kjöti, eggjum og mjólkurvörum. Þess í stað er neytt próteinskerts sérfæðis auk ávaxta, grænmetis og annarra vara sem innihalda lítið prótein. Rétt meðferð tryggir að einstaklingar með PKU þroskist eðlilega og verði heilbrigðir. Um 30 einstaklingar hér á landi hafa greinst með PKU. Sjá nánar á www.pku.is. PKU félagið á Íslandi sem er félag einstaklinga með PKU eða skylda efnaskiptagalla, foreldra þeirra, ættingja og annars áhugafólks um velferð þeirra. Starfsemi félagsins núna felst aðallega í útgáfu á kynningar- og fræðsluefni um PKU auk gerð matreiðslubókar o.fl. Þá hefur PKU-félagið staðið fyrir ráðstefnu PKU-félaga í Evrópu sem haldin var hér á landi árið 2008. Heimasíða félagsins er pku.is.
Rauði kross Íslands / Icelandic Red Cross Rauði krossinn er elsta, virtasta og útbreiddasta mannúðarhreyfing í heimi, með starfsemi í 186 löndum. Rauði kross Íslands var stofnaður 10. desember 1924.
Markmið Rauða krossins eru mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðin þjónusta, eining og alheimshreyfing.
Landsskrifstofa Rauða kross Íslands í Reykjavík hefur það hlutverk að samræma verk 50 deilda hér á landi og taka þátt í starfi Alþjóða Rauða krossins fyrir Íslands hönd. Nánari upplýsingar eru að finna á raudikrossinn.is.
Reykjadalur, sumarbúðir fatlaðra barna / Reykjadalur, summer and winter camp for children and youngsters with mental or physical disabilities Í Reykjadal rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumarbúðir og vetrardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 5 – 23 ára. Reykjadalur hefur verið starfræktur frá árinu 1963 og þjónustar um 300 börn og ungmenni árlega. Sumarbúðirnar í Reykjadal hafa það markmið að veita börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Í Reykjadal fá dvalargestir tækifæri til að upplifa ógleymanlegan tíma í sveitinni þar sem margt er brallað og hugmyndaflugið fær að njóta sín. Fjölmargt er gert til skemmtunar má þar nefna í óvissuferðir, sund, hjólastólarallý, bátasiglingar, reiðtúrar og margt margt fleira. Smellið hér til að fara á heimasíðu Reykjadals og hér til að fara á söfnunarsíðu þeirra á Facebook.
Samtök Lungnasjúklinga Markmið samtakana er að vinna að velferðar- og hagsmunamálum lungnasjúklinga og þeim markmiðum hyggjast samtökin ná með því að:
- Halda uppi öflugri félagsstarfsemi.
- Stuðla að fræðslu á lungnasjúkdómum og afleiðingum þeirra.
- Efla forvarnarstarf.
- Vinna að ráðgjöf og upplýsingamiðlun varðandi réttindi lungnasjúklinga.
Yfir vetrarmánuðina halda samtökin fræðslufundi þar sem fjallað er um málefni er varða sjúkdóma og almenna velferð lungnasjúklinga. Tilgangurinn er ekki síður að gefa aðstandendum breiðari, betri og vonandi nýja sýn. Heimasíða félagsins er lungu.is.
SÍBS, Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga / The Icelandic Association of Tuberculosis and Chest Patients Aðildarfélög SÍBS eru: Berklavörn, Akureyrardeild SÍBS, Austurlandsdeild SÍBS, Reykjalundardeild SÍBS, Hjartaheill, Astma-og ofnæmisfélagið, Samtök lungnasjúklinga og Vífill félag fólks með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir. Þá stendur SÍBS að rekstri Reykjalundar, Múlalundar og í samstarfi við aðra Múlabæ og Hlíðabæ. Sambandið er því bæði sjúklingasamtök/hagsmunasamtök og þjónustuaðildar í heilbrigðisþjónustu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni sibs.is.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu Félagið var stofnað árið 1958. Markmið félagsins eru: • Að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins. • Hafa áhrif á ríkis- og sveitarstjórnir. • Hafa áhrif á hagsmunasamtök og einstaklinga til dæmis með útgáfu á kynningarefni um málefni fatlaðra. • Efla félagslíf fatlaðs fólks. Öflugt félagsstarf hefur einkennt félagið í gegnum tíðina og er starfsemi 4 kvöld í viku, einnig rekum við sumarfélagsheimili/veiðihús að Krika við Elliðavatn sem er mjög mikið sótt þar er útivistarsvæði með hjólastólaaðgengi. Þar geta falaðir og heyfihamlaðir stundað veiðar og útiveru. Heimasíða félagsins er hbs.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband / Sjálfsbjörg, Association for disabled people in Iceland Samtökin eru hagsmunasamtök hreyfihamlaðs fólks á Íslandi. Þau eru með starfsemi út um allt land í félögum sínum sem teljast 17 og er Heilaheill nýjasta félagið. Þau berjast fyrir jöfnum rétti fatlaðra sem felst í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna og fyrir NPA sem er notendastýrð persónuleg aðstoð við fatlaða. Jafnframt leiga samtökin út íbúðir fyrir hreyfihamlaða en eitt helsta baráttumálið er og hefur verið gott aðgengi fyrir alla. Heimasíða félagsins er sjalfsbjorg.is.
SJÓNARHÓLL RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ SES / SJÓNARHÓLL - COUNCELLING CENTER Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Markmið Sjónarhóls er að fjölskyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sambærilegra lífskjara á við aðrar fjölskyldur og búi við lífsskilyrði sem gera þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. Mikil áhersla er lögð á að þjónustan sé aðgengileg og er ráðgjöf á vegum Sjónarhóls veitt endurgjaldslaust. Þjónusta Sjónarhóls er ætluð öllum óháð aldri barnins, einnig þeim sem eiga uppkomin börn. Það nægir að foreldrar/fjölskyldan hafi áhyggjur af líðan eða þroska barnsins til að fá ráðgjöf. Til að panta tíma hjá ráðgjafa þarf hvorki að liggja fyrir greining eða tilvísun frá fagaðilum. Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið, ráðgjafar okkar fara á fundi á landsbyggðinni ef þess er óskað og er það foreldrum einnig að kostnaðarlausu. Heimasíða félagsins er sjonarholl.net.
Slysavarnafélagið Landsbjörg / ICE-SAR (Icelandic Association for Search and Rescue) Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Björgunarsveitir eru 99 talsins og í þeirra röðum eru þúsundir meðlima sem eru alltaf til taks til leitar og björgunar á sjó og landi. Innan félagsins starfar einnig Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin og slysavarnadeildir um land allt sem hafa það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir slys og óhöpp ásamt því að styðja við bakið á björgunarsveitunum. Öflugt fræðslu-og útgáfustarf einkennir slysavarnastarf félagsins. Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur einnig Slysavarnaskóla sjómanna en markmið has er að efla öryggisfræðslu sjómanna; þjálfunarbúðir á Gufuskálum og Björgunarskólann þangað sem meðlimir félagsins sækja þekkingu sína. Heimasíða félagsins er landsbjorg.is.
SOS BARNAÞORPIN / SOS CHILDREN‘S VILLAGES
SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg barnahjálparsamtök sem taka að sér munaðarlaus og yfirgefin börn í yfir hundrað löndum og búa þeim góð heimili í barnaþorpum. Sérstaða samtakanna er fólgin í hlutverki SOS-móðurinnar sem tekur að sér nokkur börn og annast þau, sem væru þau hennar eigin, þar til þau fljúga úr hreiðrinu, tilbúin til að takast á við lífið sem sjálfstæðir einstaklingar. Framfærslukostnaður barnanna er greiddur af styrktarforeldrum, m.a. frá Íslandi. Sjá nánar á heimasíðunni www.sos.is.
Sóley og félagar / Fleur de soleil Hjálparstarf í formi aðstoðar við heimilislaus börn og ungmenni í Togo í Vestur-Afríku. Sóley og félagar er styrktarfélag sem var stofnað 2008 í Reykjavík. Markmið félagsins er að styðja við
starfsemi systur Victo sem hefur tekið að sér munaðarlaus
börn og unglinga í bænum Anéhó í Togo í vestur Afríku. Hún heldur heimili fyrir börnin og liðsinnir þeim sem eldri eru við
að koma undir sig fótunum með því að styrkja menntun þeirra og styðja
þau út í lífið. Sóley og félagar eru að safna fyrir byggingu húsnæðis yfir starfsemi Victo á landi sem félaginu hefur verið úthlutað af bæjarráði Aného. Systurfélag Sóley og félaga er skráð mannúðarfélag í Togo og
nefnist Fleur de Soleil. Allir aðstandendur félagsins vinna án
endurgjalds. Öll framlög renna beint til hjálparstarfsins milliliðalaust. Sjá nánar á soleyogfelagar.is.
SPES Tilgangur SPES er að byggja og reka heimili fyrir foreldralaus börn. Fyrsta SPES-þorpið er risið í borginni Lóme í Afríkuríkinu Tógó. 99 börn eiga þar heimili í dag. Nýtt þorp er í uppbyggingu í Kpalime og þar búa 25 börn í dag. SPES er hugsjónafélag sem hefur að kjörorði "Sá sem bjargar einu barni bjargar mannkyninu". Allt stjórnarstarf er unnið í sjálfboðavinnu. Skrifstofu- og umsýslukostnaður er enginn. Sjá nánar á heimasíðunni spes.is.
STERK gegn mansali / STERK against human trafficking STERK – forvarnamiðstöð er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Forvarnamiðstöðin er stofnuð í þeim tilgangi að minnka eftirspurn eftir kynlífsþjónustu og þannig vinna gegn kynferðisofbeldi í formi vændis og kláms á Íslandi. Engar rannsóknir hafa verið gerða um umfang vændiskaupa á Íslandi en ef miðað er við hin Norðurlöndin má ætla að um 13% íslenskra karla 18 ára og eldri hafi keypt sér vændi einhverntíman á ævinni. Miðstöðin sérhæfir sig í framkvæmd rannsókna sem og framleiðslu og miðlun forvarnafræðslu og upplýsingaherferða. Því færri sem kaupa vændi því færri fara í vændi. Heimasíða félagsins er sterk.is (í vinnslu).
Styrktarfélag fatlaðra á Vestfjörðum Styrktarfélag fatlaðra á Vestfjörðum var stofnað 1976 af aðstandendum fatlaðra til að berjast fyrir þjónustu í heimabyggð fyrir fötluð börn. Í dag á félagið og rekur íbúð í Kópavogi þar sem fatlaðir og fjölskyldur þeirra geta dvalið í orlofi eða meðan á læknisheimsóknum eða þjálfun stendur yfir. Félagið styrkir einnig fatlað fólk á Vestfjörðum til sumardvalar. Auk hagsmunamála er stendur félagið fyrir fræðslu til félagsmanna og aðstandenda þeirra. Hlauparar hafa undanfarin ár heitið á félagið og hefur sá styrkur gert okkur kleift að efla fræðslumál félagsins. Smellið hér til að fara á facebook síðu félagsins.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna / Icelandic Childhood Cancer Parent Organization Félagið er með mjög öfluga og fjölbreytta starfsemi sem miðar öll að því að auðvelda krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra lífið. Heimasíða SKB er skb.is.
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA / THE BENEFIT SOCIETY FOR CHILDREN WITH DISABILITIES Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra vinnur að því að stuðla að aukinni velferð fólks með fötlun, einkum barna. Eitt af meginmarkmiðum félagsins er að vera frumkvöðull að nýjungum í þjónustu við fötluð börn og ungmenni á Íslandi. Stærstu verkefni félagsins felast í rekstri Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík, þar sem fram fer umfangsmesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu, auk reksturs sumar- og helgardvala (yfir vetrartímann) fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal og Lauglandi í Holtum. Heimasíða félagsins er SLF.IS.
Styrktarfélagið Líf / Life, charity fund for women´s and children´s health care services Félagið vinnur að líknar – og mannúðarmálum og er styrktarfélag fyrir Kvennadeild Landsptítalans. Heimasíða félagsins er styrktarfelagidlif.is.
Styrktarsjóður Susie Ruta Styrktarsjóður Susie Rutar var stofnaður árið 2007 af vinum og vandamönnum Susie Rutar Einarsdóttur sem lést það sama ár. Sjóðurinn var stofnaður í þeim tilgangi að vinna gegn þeim vágesti sem fíkniefni eru í okkar samfélagi. Fíkniefni kosta fjölda einstaklinga lífið á hverju ári, oftast ungt fólk í blóma lífsins. Þrátt fyrir stuttan líftíma hefur sjóðurinn komið að ýmsum verkefnum t.d stofnun HOFF (heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum) og eins hefur sjóðurinn staðið að auglýsingaherferð í sjónvarpi og bíóhúsum undir heitinu ,,Það ætlar enginn að verða fíkill".Heimasíða félagsins er styrktarsjodursusie.is.
Sveinusjóður –uppbygging í Ölveri sumarbúðum KFUM og KFUK / Sveina´s construction fund for YMCA´s summer camp in Ölver Sveinusjóður var stofnaður árið 2009 til að safna fyrir nýjum íþróttaskála í Ölveri sumarbúðum KFUM og KFUK í Borgarfirði. Nafnið er dregið af Sveinbjörgu Arnmundsdóttur (Sveinu) sem helgaði líf sitt sumarbúðunum og gaf starfinu tugþúsundir vinnustunda á 68 ára starfsferli. Sveina lést í febrúar 2010. Íþróttaskálinn sem reisa þarf mun leysa af hólmi 60 ára gamlan leikskála og mæta öllum kröfum nútímans. Slíkt hús mun aldrei rísa nema fyrir gjafir og styrki hollvina sumarbúðanna. Íþróttaskáli sem þjóna mun íslenskri æsku og kristilegu sumarbúðastarfi um langa framtíð. Heimasíða félagsins er olver.is.
Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum / Organisation for terminally sick child Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu. Helstu stefnumál Umhyggju eru m.a.: að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra sem orðið hafa fyrir verulegum fjárhagsörðuleikum vegna veikindanna, að veita upplýsingar um þarfir langveikra barna, að benda stjórnvöldum á þessar þarfir og að hvetja þau til úrbóta á aðbúnaði veikra barna. Heimasíða félagsins er umhyggja.is.
UMSJÓNARFÉLAG EINHVERFRA / THE ICELANDIC AUTISTIC SOCIETY Umsjónarfélag einhverfra var stofnað 1977. Í félaginu er fólk með einhverfurófsraskanir, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við fólk með einhverfurófsraskanir. Mikil áhersla hefur verið lögð á að taka virkan þátt í mótun þjónustu fyrir þennan hóp. Félagið hefur lagt ríka áherslu á fræðslu- og kynningarstarfsemi og er vettvangur fyrir gagnkvæman stuðning aðstandenda einhverfra, enda er mjög mikilvægt að hittast, bera saman bækur sínar og veita hvert öðru stuðning. Heimasíða félagsins er einhverfa.is.
UNICEF / UNICEF Iceland UNICEF, eða Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er áhrifamesti málsvari barna í heiminum. Samtökin hafa verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í yfir 60 ár; þau standa vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára og sinna bæði langtímaþróunaraðstoð og neyðaraðstoð. Leiðarljós UNICEF er sú bjargfasta trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsu, menntun, jafnrétti og vernd. Sjá nánar á heimasíðunni: www.unicef.is.
UNIFEM á Íslandi / Nationial Committee for UNIFEM in Iceland Hver er starfsemi UNIFEM? 1. Kynna og auka áhuga almennings á starfsemi UNIFEM. 2. Vera málsvari kvenna í þróunarlöndum og á átakasvæðum með það að leiðarljósi að störf þeirra séu órjúfanlegur hluti efnahags- og félagslegrar þróunar. 3. Afla fjárframlaga til starfssemi UNIFEM frá hinu opinbera og einkaaðilum. Heimasíða félagsins með nánari upplýsingum er www.unifem.is.
Vindáshlíð, sumarbúðir KFUK (Í Kjós) Vindáshlíð eru sumarbúðir fyrir stúlkur á aldrinum 9-17 ára. Á veturna eru einnig kvennaflokkar, mæðgnaflokkar, mæðginaflokkur og fjölskylduflokkar. Í þau 63 ár sem sumarbúðirnar í Vindáshlíð hafa verið starfræktar hefur jákvæð uppbygging, framfarir og heilbrigt samfélag verið höfð að leiðarljósi. Á hverju sumri eru tíu dvalarflokkar í Vindáshlíð. Börnin dvelja viku í senn. Rúmlega 80 stúlkur komast að í hverjum flokki, eða um átta hundruð á hverju sumri. Undanfarin ár hafa færri komist að en vilja í marga flokka. Sumarið 2009 kostaði vikudvöl 36.400 krónur. Upphæð þessi stendur undir matarkostnaði, starfsmönnum og föstum kostnaði, en litlum sem engum rekstrarafgangi, sem nauðsynlegur er til uppbyggingar starfsins. Heimasíða félagsins er kfum.is.
Vinir Hrings / Friend of Hringur Félagssamtök. Vinir Hrings reka verkefni á Barnaspítala Hringsins sem felst í því að börnin á spítalanum fá heimsókn einu sinni í viku frá góðlátlegum og skemmtilegum ísbirni sem heitir Hringur. Hringur skemmtir börnunum, styttir þeim stundir og gerir vistina á barnaspítalanum ánægjulegri. Hringur gleður lítill sem stór hjörtu. Hringur er einskonar mjúk ásýnd barnaspítalans og hugmyndin hefur verið þróuð í nánu samstarfi við lækna og hjúkrunarfólk barnaspítalans ásamt öðru fagfólki í leiklist. Heimasíða félagsins hringur.is (er í vinnslu).
VINIR Vatnajökuls – hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs / Friends of Vatnajokull National Park VINIR Vatnajökuls, eru frjáls félagasamtök. Markmið og stefna VINANNA er að afla fjár til að styrkja rannsóknir, fræðslu og kynningu á Vatnajökulsþjóðgarði – stærsta þjóðgarði Evrópu. Það fé sem safnast til VINANNA í Reykjavíkurmaraþoni 2010 rennur óskipt til gerðar fræðsluefnis fyrir börn um Vatnajökulsþjóðgarð. VINIRNIR munu tvöfalda upphæðina sem safnast til að gefa börnum á Íslandi tækifæri til að fræðast um þá þjóðargersemi sem Vatnajökulsþjóðgarður er. Með þekkingu vaknar virðing barnanna fyrir þjóðgarðinum sem mun stuðla að verndun hans til framtíðar. Heimasíða félagsins er vinirvatnajokuls.is.
Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi Von er styrktarfélag sem stofnað var af hjúkrunarfræðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi árið 2007. Á gjörgæslunni liggja alvarlega slasaðir og mikið veikir sjúklingar. Það er því oft langur og erfiður tími sem bíður skjólstæðinga þeirra. Til að gera dvöl þeirra sem bærilegasta var því hafist handa að endurnýja aðstandendaherbergi deildarinnar. Von stendur vörð um þarfir skjólstæðinga sinna og stendur m.a fyrir söfnunum með sölu á jólakorta-,tækifæris- sem og minningarkortum. Von veitir reglulega styrki til sjúklinga sem orðið hafa fyrir alvarlegum áföllum sem og styrki til starfsemi sem tengist skjólstæðingum deildarinnar. Aðstandandaherbergi er nú m.a búið með góðri svefnaðstöðu, tölvu og aðstöðu til að neyta matar. Ljóst er að reglulegrar endurnýjunar er þörf og næg verkefni til að takast á við. Tölvupóstfang félagsins er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Ægir, íþróttafélag fatlaðra Þann 12. desember árið 1988 var Íþróttafélagið Ægir stofnað. Ægir, er íþróttafélag fyrir fólk með fötlun. Markmið félagsins er að sjá til þess að einstaklingar með fötlun geti stundað íþróttir sem þeim hentar og gefa þeim færi á að keppa í. Íþróttafélagið Ægir heldur úti tveimur æfingum á viku fyrir eldri hópinn í Boccia þar sem einstaklingar á aldrinum 15 – 40 ára æfa gagngert fyrir þau mót sem við tökum þátt í, ásamt því að stuðla að þjálfun fínhreyfinga. Jafnframt erum við með boccia fyrir yngri einstaklinga þar sem við erum með æfingu einu sinni í viku. Sundfólkið okkar æfir einnig einu sinni í viku og er sú starfsemi enn í uppbyggingu. Stefnt er á að vera með leiksund fyrir yngri einstaklinga félagsins í haust. Þá mun félagið formlega hefja samstarf við reynda leikhússkvísu héðan frá eyjum. Þetta verður líka í haust og þá markmiðið að sjá um að örva sköpunarhliðina.Hægt er að fylgjast með félaginu og fá nánari upplýsingar á heimasíðunni, http://ifaegir.123.is/ og svo er hægt að finna félagið á facebook undir heitinu; Ægir, íþróttafélag fatlaðra.
Sendu okkur póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
ef þú vilt skrá góðgerðafélagið þitt í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010. Skráningu góðgerðafélaga lýkur miðvikudaginn 18.ágúst kl.15:30.
|