|
Líkt og undanfarin 26 ár er nauðsynlegt að loka götum á meðan Reykjavíkurmarþan Íslandsbanka fer fram. Ekki verður unnt að loka allsstaðar og þurfa hlauparar því að fara varlega. Búast má við truflun á umferð meðan á hlaupi stendur. Bílstjórar eru beðnir að sýna hlaupurum tillitsemi.
Lokanir á götum frá kl. 01-16 Amtmannsstígur Bjarkargata Fríkirkjuvegur Geirsgata Kalkofnsvegur Kringlumýrarbraut norðan Borgartúns Lækjargata Skálholtsstígur vestan Laufásvegar Skothúsvegur Skólastræti Sóleyjargata Sæbraut að Laugarnesvegi Tjarnargata Tryggvagata Vonarstræti Þingholtsstræti norðan Amtmannsstígs
Einstefna frá kl. 08-15 Austur Eiðsgranda Austur Mýrargötu Austur Sæbraut milli Laugarnesvegar og Holtavegar Vestur Ægisíðu og Nesveg
Truflun á umferð frá 8-12 Skothúsvegur, Suðurgata að Melatorgi , Lynghagi, Suðurströnd, Lindarbraut , Norðurströnd, hringtorg vestast á Hringbraut, Ánanaust, hringtorg við enda Mýrargötu, Skothúsvegur, Suðurgata, Hringbraut, austast á Vesturgötu, Hafnarstræti, gatnamót Borgartúns og Kringlumýrarbrautar, gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar, Engjavegur við Fjölskyldugarð, Álfheimar við Glæsibæ og Skeiðarvogur við Suðurlandsbraut.
Vegna takmarkaðs fjölda bílastæða í miðbænum eru hlauparar hvattir til að skilja bílinn eftir heima. Lögreglan mun sekta alla sem leggja ólöglega.
Gagnlegar upplýsingar um bílastæði og ferðir strætó má finna á vef Menningarnætur, menningarnott.is.
|