| Latabæjarhlaupið 2012 |
|
|
|
|
Latabæjarhlaupið er ætlað börnum 8 ára og yngri en foreldrar og forráðamenn geta hlaupið með börnunum. Hlaupið fer fram í Hljómskálagarðinum laugardaginn 18.ágúst 2012. Skráning er hafin í Latabæjarhlaupið 2012. Smelltu hér til að skrá barn til þátttöku. Forskráningu á netinu lýkur miðvikudaginn 15.ágúst 2012 kl.16:00. Einnig verður hægt að skrá börn til þátttöku á skráningarhátíð í Laugardalshöll föstudaginn 17.ágúst kl.10:00-19:00 en athugið að þá er þátttökugjaldið dýrara.
GRÆNA leiðin er fyrir þriggja ára og yngri Nánari upplýsingar um hlaupaleiðir og vegalengdir verða birtar þegar nær dregur hlaupi. Allir sem eru með kerrur og vagna meðferðis skulu fara aftast í hverjum ráshópi. Æskilegt er að fullorðinn fylgi börnum sem eru 6 ára og yngri. Systkini geta hlaupið saman hentuga vegalengd.
Þátttökugjald er 1.000 kr ef skráð er á netinu fyrir kl.16:00 miðvikudaginn 15.ágúst. Á skráningarhátíð í Laugardalshöll föstudaginn 17.ágúst hækkar þátttökugjaldið í 1.200 kr. Innifalið í þátttökugjaldinu er m.a. Latabæjarbolur sem verður afhentur með skráningargögnum föstudaginn 17.ágúst milli kl. 10 og 19 í Laugardalshöll. Öll börn fá spjald til að festa framan á bolinn sinn með nælum með skráningargögnum. Litur spjaldsins segir til um hvaða leið barnið hleypur (fer eftir aldri). Börnin geta skrifað nafnið sitt, uppáhaldsnúmerið eða teiknað mynd á spjaldið. Allir þátttakendur verða að klæðast Latabæjarbol til að fá verðlaunapening að hlaupi loknu. Foreldrar sem fylgja börnum í Latabæjarhlaupinu eru ekki skráðir og þurfa ekki að greiða þátttökugjald. Veittur er fjölskylduafsláttur ef foreldri/forráðamaður hleypur í Reykjavíkurmaraþoni og tvö eða fleiri börn. Sjá nánar í verðskrá Reykjavíkurmaraþons.
Föstudaginn 17.ágúst verður skráningarhátið Latabæjarhlaupsins í Laugardalshöll. Á skráningarhátíðinni geta forskráðir þátttakendur nálgast skráningargögn sín og þeir sem eiga eftir að skrá sig geta einnig gert það á staðnum. Skráningarhátíðin er frá kl. 10-19.
Í rásmarki verða afmörkuð svæði fyrir hvern ráshóp. Vinsamlega hlýðið fyrirmælum starfsmanna um hvar þið getið komið ykkur fyrir. Í endamarki verður mikill fjöldi. Því er mikilvægt að forráðamenn sem ekki hlaupa með, bíði við enda marksvæðis en fari ekki inn á svæðið sjálft. Við endamark verður tjald þar sem börn sem ekki finna foreldra sína bíða. Vinsamlega geymið myndatöku þar til komið er útaf marksvæðinu.
Gera má því ráð fyrir að á bilinu 8-12 þúsund manns séu á svæðinu á meðan hlaupið fer fram. Bílastæði eru við Háskóla Íslands og þaðan er auðvelt að komast yfir í Hljómskálagarðinn á göngubrú við Njarðargötu. Svo er líka tilvalið að taka strætó.
Dagskrá verður birt hér síðar en gert er ráð fyrir að ræst verði í fyrsta hlaup kl. 13:30.
|






















